Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Selíak sjúkdómurinn

Kaflar
Útgáfudagur

Selíak sjúkdómurinn (e. coeliac disease) eða glútenóþol er langvinnur sjálfsofnæmissjúkdómur þar sem ónæmiskerfið bregst við glúteni. Glúten er prótín sem finnst meðal annars í hveiti, byggi og rúgi. 

Sjúkdómurinn er algengari hjá konum og einstaklingum með aðra sjálfsofnæmissjúkdóma eins og til dæmis sykursýki týpu 1 eða skjaldkirtilssjúkdóma. Sjúkdómurinn getur verið arfgengur og aukast líkurnar verulega ef náinn ættingi er með sjúkdóminn. 

Einkenni

•    Niðurgangur, hægðatregða, magaverkur og/eða önnur meltingaróþægindi
•    Uppköst og/eða ógleði
•    Þreyta, einbeitingarskortur og/eða depurð
•    Höfuðverkur 
•    Þyngdartap 
•    Skert þyngdaraukning hjá börnum og jafnvel vaxtarskerðing
•    Sár í munni
•    Útbrot, blöðrur á húð
•    Beinþynning
•    Liðverkir
•    Ófrjósemi 

Orsök

Þegar einstaklingur með selíak sjúkdóm borðar glúten myndast bólgur og skemmdir í slímhúð smáþarmanna. Það getur leitt til vannæringar og annarra heilsufarsvandamála. 

Greining

Greining á selíak sjúkdómi hefst hjá lækni þar sem farið er yfir heilsufarssögu og tekin blóðprufa sem mælir sértæk mótefni. Greiningin er síðan staðfest hjá meltingarsérfræðingi með magaspeglun, þar sem sýni er tekið úr slímhúð skeifugarnar. Hafa ber í huga að einkenni sjúkdómsins geta einnig verið einkenni ýmissa annarra sjúkdóma og því er mikilvægt að átta sig á sambandi einkenna og mataræðis, sérstaklega hveitis, rúgs og byggs. 

Meðferð

Meðferð við selíak sjúkdómi felst í því að neyta eingöngu glútenlausrar fæðu. Í sumum tilfellum þarf að meðhöndla fylgikvilla sjúkdómsins og næringarskort í samráði við heilbrigðisstarfsfólk. 

Hvað get ég gert?

  • Borðað eingöngu glútenlausa fæðu 
  • Fengið fræðslu og ráðgjöf frá næringarfræðingi
  • Tryggt að mataræðið veiti öll nauðsynleg næringarefni sem uppfylla næringarþörf líkamans

Hvenær skal leita aðstoðar?

  • Ef grunur er um selíak sjúkdóm
  • Versnandi einkenni þrátt fyrir viðeigandi meðferð
  • Hægt er að bóka tíma hjá lækni á heilsugæslunni, barnalækni eða meltingarlækni.

Finna næstu heilsugæslu