Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Fitubjúgur

Kaflar
Útgáfudagur

Fitubjúgur (e. lipoedema) er langvinnur sjúkdómur þar sem fitufrumur á ákveðnum svæðum líkamans stækka óeðlilega og safna meiri fitu en venjulega. Þetta veldur breytingum á fituvefnum og getur leitt til bólgu og óþæginda. Fitubjúgur er ekki það sama og offita, þótt sjúkdómunum sé oft ruglað saman.

Sjúkdómurinn er algengari hjá konum. 

Einkenni

Líkamleg einkenni koma yfirleitt svipað fram á báðum hliðum líkamans. Fitusöfnun á ákveðnum stöðum á líkamanum. Algengustu staðirnir eru:

  • Mjaðmir
  • Rass
  • Læri
  • Kálfar
  • Upphandleggir

Önnur einkenni geta verið:

  • Þyngsli, verkir og/eða eymsli í fituvef á viðkomandi líkamshlutum 
  • Ójafnt og hraunkennt yfirborð fituvefja  
  • Húðin yfir svæðinu getur verið köld viðkomu og/eða viðkvæm fyrir snertingu 
  • Marblettir við lítil tilefni
  • Æðaslit og/eða æðahnútar 
  • Við þyngdartap minnkar fituvefur á þessum svæðum hægar en annars staðar á líkamanum
  • Liðirnir geta verið mjög hreyfanlegir og líkamsstaða skökk, sérstaklega við hné og ökkla
  • Þreyta
  • Andleg vanlíðan vegna óþæginda og erfiðrar upplifunar tengdrar sjúkdómnum

Orsakir

Helstu orsakir fyrir fitubjúg: 

  • Erfðir
  • Hormónabreytingar, til dæmis við: 
    • Kynþroska
    • Meðgöngu
    • Notkun hormónagetnaðarvarna
    • Breytingarskeiðið

Greining

Læknir getur greint fitubjúg með heilsufarssögu og skoðun. Við greiningu er í sumum tilfellum notast við aðrar rannsóknir til þess að útiloka aðra sjúkdóma.  

Meðferð

Markmið meðferðar við fitubjúg er að draga úr einkennum og bæta líðan. Meðferðin er einstaklingsbundin og getur meðal annars falið í sér ráðgjöf hjá næringarfræðingi, heilsueflandi móttöku á heilsugæslu, sjúkraþjálfun og sálfræðimeðferð. 

Hvað get ég gert?

Hvenær skal leita aðstoðar?

Hafir þú áhyggjur af því að þú sért með fitubjúg getur þú leitað til heilsugæslunnar.  

Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býður upp á fræðslu um fitubjúg og einstaklingsviðtöl þar sem farið er yfir greiningu og meðferðir við fitubjúg.  

Finna næstu heilsugæslu