Fara á efnissvæði
Fara á efnissvæði

Kíghósti

Kaflar
Útgáfudagur

Kíghósti (e. pertussis) er öndunarfærasýking sem orsakast af bakteríunni bordetella pertussis. Hann er algengastur hjá börnum, einkum á fyrstu mánuðum ævinnar. Hjá unglingum og fullorðnum birtist sjúkdómurinn sem langvarandi og þrálátur hósti. Sýkingin stafar af bakteríu sem framleiðir eiturefni sem veldur slæmum hóstaköstum.

Einkenni

  • Vægt kvef
  • Vaxandi hósti
  • Slímsöfnun og slæm hóstaköst, sérstaklega á næturnar

Eftir um það bil tvær vikur færast einkennin í vöxt með áköfum hóstaköstum og fylgir þeim einkennandi soghljóð við innöndun. Síðari einkenni eru:

  • Hnerri
  • Nefrennsli
  • Hiti

Einkenni sjúkdómsins geta verið til staðar í allt að 10 vikur.

Smitleiðir og meðgöngutími

Smit berst milli manna með úða frá öndunarfærum (t.d. með hnerra). Meðgöngutími sjúkdómsins er yfirleitt um 2-3 vikur.

Greining

Sjúkdóminn má staðfesta með ræktun frá nefi.

Fylgikvillar

Ungum börnum er sérlega hætt við alvarlegum fylgikvillum sýkingarinnar sem geta verið:

  • Öndunarstopp
  • Krampar
  • Lungnabólga
  • Truflun á heilastarfsemi 

Kíghósti er ekki jafn alvarlegur hjá eldri börnum og fullorðnum en mikill hósti getur haft í för með sér:

  • Eyrnabólgu
  • Kviðslit
  • Verki í rifbeinum
  • Þvaglek við mikinn hósta

Meðferð

Meðferð fer eftir hversu mikill sjúkdómurinn er. Sýklalyf gera lítið gagn, nema mjög snemma á sjúkdómsferlinum. Önnur meðferð lítur að hvíld, vökvainntekt og næringu. Lítil börn með kíghósta þurfa iðulega að dveljast langtímum á sjúkrahúsi.

Finna næstu heilsugæslustöð hér.

Forvarnir

Bólusetning er áhrifarík til að koma í veg fyrir sjúkdóminn hjá ungum börnum. Mikilvægt er að byrja að bólusetja þau ung því sjúkdómurinn er hættulegastur yngstu börnunum. Hér á landi eru börn bólusett við 3, 5 og 12 mánaða aldur og endurbólusett við 4 og 14 ára aldur. Bóluefnið verndar í um 10 ár og því er möguleiki á að smitast síðar á ævinni. .

Boðið er upp á bólusetningu fyrir verðandi mæður fyrir 32. viku meðgöngu. Þegar bólusett er á öðrum eða þriðja þriðjungi meðgöngu myndast verndandi mótefni sem fylgjan flytur til barnsins. Mótefnin geta varið barnið strax frá fæðingu og ver barnið þer til barnabólusetningar taka við.

Fyrirkomulag barnabólusetninga. 

Bóluefni

Bólusett er gegn kíghósta með samtengdu bóluefni sem heitir Pentavac við þriggja, fimm og tólf mánaða aldur.

Örvunarbólusetning er fyrst gefin við 4 ára aldur með bóluefninu Booztrix og aftur við 14 ára aldur með bóluefninu Booztrix polio

Ráðlagt er að fá bóluefnið booztrix polio með 10 ára fresti eftir 14 ára aldur.